Hvar vilt þú auglýsa í Fréttablaðinu?

Fréttablaðið er mest lesna dagblað á landinu og ættu allir að geta fundið sinn stað til að auglýsa í Fréttablaðinu – hvort sem um er að ræða smáa eða stóra auglýsingu.

Almenni blaðhlutinn eru fremstu og öftustu síður Fréttablaðsins; t.d. fréttasíður, leiðarinn, umræðusíður, fólk í fréttum og íþróttir svo eitthvað sé nefnt. Þar er hægt að kaupa auglýsingar af öllum stærðum og gerðum. Hér má sjá verð og staðsetningar sem hægt er að kaupa.

ALLT blaðhlutinn er í miðju Fréttablaðsins og þar eru mismunandi efnistök eftir vikudögum; t.d. á þriðjudögum er alltaf Heilsa og á fimmtudögum er alltaf Tíska. Í ALLTinu er hægt að kaupa smærri auglýsingar og hér má sjá verðskrána.

Raðauglýsingar – Fasteignir eru í miðju Fréttablaðsins og þar eru t.d. atvinnuauglýsingar, útboðsauglýsingar, tilkynningar og fundir auk fasteignaauglýsinga. Þessar auglýsingar er hægt að kaupa í öllum stærðum og hér má nálgast verðskrá.

Sérblöð – Föstudagur eru fylgiblöð Fréttablaðsins. Sérblöð hafa mismunandi efnistök og það er um að gera að hafa samband til að athuga hvort ekki sé á leiðinni sérblað sem hentar akkúrat þinni auglýsingu. Í sérblöð er hægt að kaupa auglýsingar í öllum stærðum og gerðum og hér er verðskrá þeirra.

Smáauglýsingar eru í miðju Fréttablaðsins og þar eru t.d. auglýstir bílar til sölu, húsnæði til leigu og öll almenn þjónusta. Þessi deild þjónustar að mestu einstaklinga. Hér má nálgast verðskrá smáauglýsinga.

Þjónustuauglýsingar eru í miðju Fréttablaðsins og hefur sömu flokka og smáauglýsingar nema um er að ræða stærri smáauglýsingar. Þessi deild þjónustar að mestu fyrirtæki. Hér er verðskrá þjónustuauglýsinga.

Tímamótaauglýsingar birtast í almenna hluta Fréttablaðsins. Þessum flokki tilheyra t.d. legsteinaauglýsingar, útfararþjónusta, afmælisauglýsingar og minningargreinar. Hér má sjá verðskrá tímamótaauglýsinga.

Andlátstilkynningar birtast í almenna hluta Fréttablaðsins. Þessum flokki tilheyra andlátstilkynningar, tilkynning um jarðarför og þakkartilkynningar. Hér er verðskrá andlátstilkynninga.

Innskot eru aðkeypt auglýsingablöð sem skotið er inn í Fréttablaðið til dreifingar. Hér má nálgast verðskrá fyrir innskot.



Almenn skilyrði Fréttablaðsins